Samsetning
Á skjánum er plastfilma til varnar. Þú ættir að fletta þessari filmu af áður en snertiskjárinn
er notaður. Annars virkar snertiskjárinn hugsanlega ekki rétt.
Til að fjarlægja baklokið
•
Settu fingurnögn í bilið (eins og sýnt er á myndinni) og lyftu svo lokinu.
7
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Micro SIM-kortið sett í
•
Fjarlægðu rafhlöðulokið og settu svo micro SIM-kortið í raufina þannig að gylltu
snerturnar snúi niður.
Þú verður að nota micro SIM-kort til að síminn virki rétt. Úr sumum SIM-kortum af venjulegri
stærð er hægt að losa innfelld micro SIM-kort. Þegar micro SIM-kortið hefur verið losað úr
SIM-korti af venjulegri stærð er ekki hægt að setja það aftur í og nota SIM-kortið aftur. Ef þú ert
ekki með micro SIM-kort eða ef núverandi SIM-kort inniheldur ekki innfellt micro SIM-kort
skaltu hafa samband við símafyrirtækið til að fá frekari upplýsingar um hvernig þú færð eða
skiptir um SIM-kort.
Micro SIM-kortið tekið úr símanum
1
Losaðu bakhliðina.
2
Finndu raufina fyrir SIM-kortið og klemmuna.
3
Haltu klemmunni niðri með fingurnögl á meðan þú ýtir micro SIM-kortinu út.
4
Dragðu SIM-kortið alveg út úr raufinni.
Ekki nota oddhvassan hlut til að ýta kortinu út úr raufinni þar sem það gæti skaðað tækið.
8
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Minniskort sett í
1
Fjarlægðu baklokið.
2
Settu minniskortið í minniskortaraufina þannig að gylltu snerturnar snúi niður.
Minniskort fjarlægt
1
Slökktu á tækinu eða aftengdu minniskortið frá
Stillingar > Geymsla > Aftengja
SD-kort.
2
Fjarlægðu bakhliðina og dragðu minniskortið út til að fjarlægja það.
Til að hengja rafhlöðulokið við
1
Settu baklokið yfir bakhlið tækisins og ýttu svo hornunum niður svo þau festist.
2
Ýttu hliðunum á lokinu niður þangað til það smellur á sinn stað með því að fara
neðst til efst á lokinu.