Tækið uppfært
Þú skalt uppfæra hugbúnað tækisins til að fá nýjustu eiginleikana, viðbætur og
lagfæringar og tryggja hámarksafköst. Þegar hugbúnaðaruppfærsla er í boði birtist á
stöðustikunni. Þú getur einnig athugað hvort það séu nýjar uppfærslur.
107
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Einfaldasta leiðin til að setja upp hugbúnaðaruppfærslu er að gera það þráðlaust úr
tækinu. Sumar uppfærslur eru þó ekki í boði til niðurhals um þráðlausa tengingu. Þú þarft
þá að nota Xperia™ Companion forritið í tölvu eða Apple
®
Mac
®
tölvu til að uppfæra
tækið þitt.
Frekari upplýsingar um uppfærslur hugbúnaðar er að finna á
www.sonymobile.com/update.
Ófullnægjandi geymslurými getur komið í veg uppfærslur. Tryggðu að þú hafa nægilegt
geymslurými áður en þú reynir að uppfæra.
Leitað að nýjum hugbúnaði
1
Á heimaskjánum pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Uppfærslumiðstöð.
3
Til að athuga hvort þú sért með nýjasta kerfishugbúnaðinn uppsettan pikkarðu á
Kerfi. Til að leita að uppfærslum við uppsett forrit í tækinu pikkarðu á Uppf..
Tækið uppfært þráðlaust
Notaðu forritið uppfærslumiðstöð forritsins til að uppfæra tækið þráðlaust. Það sér bæði
um kerfisuppfærslur og uppfærslur á forritum og getur einnig sótt ný forrit sem samin
hafa verið fyrir tækið. Framboð á uppfærslum sem hægt er að sækja yfir farsímakerfi fer
eftir þjónustuveitu. Mælt er með því að Wi-Fi® net sé notað í stað gagnatengingar þegar
nýr hugbúnaður er sóttir, svo komist verði hjá gagnaflutningsgjöldum.
Kerfisuppfærsla sótt og sett upp
1
Á heimaskjánum pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Uppfærslumiðstöð > Kerfi.
3
Veldu þá kerfisuppfærslu sem óskað er og pikkaðu svo á .
4
Þegar niðurhalinu lýkur pikkarðu á og fylgir leiðbeiningunum til að ljúka
uppsetningunni.
Uppfærslur fyrir forrit sóttar og settar upp
1
Á heimaskjánum pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Uppfærslumiðstöð > Kerfi.
3
Til að sækja tiltekna uppfærslu fyrir forrit velurðu uppfærsluna og pikkar svo á .
Til að sækja allar tiltækar uppfærslur fyrir forrit pikkarðu á . Uppfærslur eru settar
upp sjálfkrafa eftir niðurhal.
Uppfærðu tækið þitt með tölvunni
Hægt er að sækja og setja upp hugbúnaðaruppfærslur á tækið með því að nota tölvu
með Internet tengingu. Þú þarft USB-snúru og tölvu eða Apple
®
Mac
®
tölvu sem keyrir
Xperia™ Companion hugbúnað.
Ef þú ert ekki með Xperia™ Companion hugbúnað setja upp í viðkomandi tölvu, tengdu tækið
við tölvu með USB-snúru og fylgdu skjáleiðbeiningunum um uppsetningu.
Til að uppfæra tækið með tölvu
1
Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion forritið sé sett upp í tölvunni eða
Apple
®
Mac
®
tölvunni.
2
Tengdu tækið við tölvuna með USB-snúrunni.
3
Tölva: Keyrðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn. Eftir nokkrar mínútur, nemur
tölvan tækið þitt og leitar að nýjum hugbúnaði.
4
Tölva: Ef nýr hugbúnaður fyrir símann finnst birtist sprettigluggi. Fylgdu
leiðbeiningunum á skjánum til að setja inn viðeigandi uppfærslur.
Þegar þú tengir tækið við tölvuna í gegnum USB-snúru, er beðið um að setja upp hugbúnað,
eða hætta, nema þú hefur áður valið
Ekki sýna aftur.
108
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.