Sony Xperia E3 - Búa til öryggisafrit og endurheimta efni

background image

Búa til öryggisafrit og endurheimta efni

Almennt ættir þú ekki að vista myndir, myndskeið og önnur persónuleg efni aðeins á

innra minni tækisins. Ef eitthvað gerist með vélbúnaðinn eða ef tækið þitt týnist eða er

stolið eru gögn sem eru vistuð á innra minninu glatað að eilífu. Það er mælt með að nota

Xperia™ Companion forritið til að gera öryggisafrit sem vista gögnin þín á öruggan hátt á

tölvunni, það er, ytra tæki. Sérstaklega er mælt með þessari aðferð ef þú uppfærir

hugbúnað tækisins í nýrri útgáfu af Android.
Að nota forritið öryggisafrit og endurheimta efni, getur þú gert flýti öryggisafrit á netinu af

helstu stillingum og gögnum með Google™ reikningnum þínum. Þú getur líka notað þetta

forrit til að taka öryggisafrit á staðnum, t.d., á SD-kortið í tækinu eða utanáliggjandi USB-

geymslutæki.

Það er mikilvægt að þú leggir lykilorðið á minnið sem þú velur þegar þú tekur öryggisafrit af

gögnunum. Ef þú gleymir þessu lykilorði er ekki víst að hægt sé að endurheimta mikilvæg

gögn, t.d. tengiliði og skilaboð.

Öryggisafrit búið til á tölvu

Notaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn til að taka öryggisafrit af gögnum úr tækinu
yfir í tölvu eða Apple

®

Mac

®

tölvu. Þessi öryggisafritaforrit leyfa þér að búa til öryggisafrit

af eftirfarandi tegundum gagna:

Tengiliðir

Dagbók

Stillingar

Fjölmiðlaskrár eins og tónlist og myndbönd

Ljósmyndir og myndir

113

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Öryggisafrit búin til af gögnum með tölvu

1

Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion forritið sé sett upp í tölvunni eða
Apple

®

Mac

®

tölvunni.

2

Tengdu tækið við tölvu með USB-snúru.

3

Tölva: Opnaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn. Eftir smá stund finnur tölvan

tækið þitt.

4

Veldu

Öryggisafrit á aðalskjánum.

5

Fylgdu skjáleiðbeiningunum til að búa til öryggisafrit af gögnum í tækinu þínu.

Til að endurheimta gögnin þín með tölvu

1

Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion forritið sé sett upp í tölvunni eða
Apple

®

Mac

®

tölvunni.

2

Tengdu tækið við tölvu með USB-snúru.

3

Tölva: Opnaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn.

4

Smelltu á

Endurheimta.

5

Veldu öryggisafritaskrá frá öryggisafritaskrám pikkaðu síðan á

Endurheimta og

fylgdu skjáleiðbeiningum til að endurheimta gögn á tækið þitt.

Öryggisafrit tekið með öryggisafrita- og endurheimtingarforriti

Þú getur aðeins notað þessa aðferð til að taka öryggisafrit og endurheimta efni á milli sömu

útgáfu af Android. Ekki er hægt að nota hana til að endurheimta efni eftir kerfisuppfærslu.

Mælt er með því að tekið sé öryggisafrit með öryggisafrita- og endurheimtingarforritinu

áður en tækið er grunnstillt. Með forritinu er hægt að taka öryggisafrit af eftirfarandi

tegundum gagna á SD-kort eða á ytra USB-geymslutæki sem tengt er við tækið með

snúru:

Bókamerkjum

Símtalaskrám

Tengiliðum

Forritum sem sótt hafa verið af Google Play™

Margmiðlunarskilaboðum

Kerfisstillingum (s.s. hringingum, hringhljóðstyrk og tungumálastillingum)

Textaskilaboðum

Þegar forrit frá Google Play™ eru endurheimt getur það haft í för með sér

viðbótargagnaflutningsgjöld.

Öryggisafrit af efni tekið með með öryggisafrita- og endurheimtingarforriti

1

Ef þú ert að taka öryggisafrit af efni til að geyma í USB-geymslu þarf að tryggja að

geymslan sé tengd við tækið með viðeigandi snúru. Ef þú ert að taka öryggisafrit á

SD-kort þarftu að tryggja að SD-kortið sé rétt sett í tækið.

2

Finndu og pikkaðu á

Öryggisafrit og endurheimt.

3

Pikkaðu á

Afrita og veldu svo áfangastað og tegund gagna sem þú vilt taka

öryggisafrit af.

4

Pikkaðu á

Gera öryggisafrit núna.

5

Sláðu inn lykilorðið fyrir afritið og pikkaðu síðan á

Í lagi.

Efni endurheimt með öryggisafrita- og endurheimtingarforriti

1

Ef þú ert að endurheimta efni úr USB-geymslu þarf að tryggja að geymslan sé

tengd við tækið með viðeigandi snúru. Ef þú ert að endurheimta efni af SD-korti

þarftu að tryggja að SD-kortið sé rétt sett í tækið.

2

Finndu og pikkaðu á

Öryggisafrit og endurheimt.

3

Pikkaðu á

Endurheimta.

4

Veldu skrána sem þú vilt endurheimta og pikkaðu svo á

Endurheimta núna.

5

Sláðu inn lykilorðið fyrir afritaskrána og pikkaðu svo á

Í lagi.

Mundu að öllum breytingum sem þú gerir á gögnum og stillingum eftir að þú býrð til

öryggisafrit verðura eytt meðan á endurheimtingarferlinu stendur.

114

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.