Sony Xperia E3 - Almennar myndavélarstillingar

background image

Almennar myndavélarstillingar

Yfirlit yfir tökustillingar

Sjálfvirk greining umhverfis

Hagræddu stillingunum þínum eftir umhverfi.

Handvirkt

Breyttu stillingum myndavélarinnar handvirkt.

AR áhrif

Taktu myndir með viðbættu umhverfi og persónum.

Skapandi áhrif

Bættu áhrifum við myndir eða myndskeið.

Timeshift burst

Finndu bestu myndina í röð mynda.

Social live

Sendu myndskeið út beint á Facebook™.

Víðmynd

Notaðu þessa stillingu til að taka gleiðhyrndar víðmyndir. Pikkaðu bara á skjáinn og færðu myndavélina

stöðugt til hliðar.

Sjálfvirk greining umhverfis

Sjálfvirk greining umhverfis greinir við hvaða aðstæður þú ert að taka mynd og aðlagar

stillingar sjálfkrafa í samræmi við það til að tryggja að þú náir sem bestri mynd.

Handvirk stilling

Notaðu handvirka stillingu þegar þú vilt stilla myndavélina handvirkt.

AR áhrif

Þú getur sett AR (aukinn raunveruleika) áhrif á myndirnar þínar til að gera þær

skemmtilegri. Þessi stilling gerir þér kleift að fella 3D umhverfi inn í myndirnar þínar þegar

þú tekur þær. Veldu aðeins umhverfið sem þú vilt stilla stöðu þess í myndglugganum.

Skapandi áhrif

Þú getur notað mismunandi áhrif á myndirnar þínar eða myndskeið. Þú getur t.d. bætt

Fortíðaráhrifum við til að láta myndir virðast eldri eða Skissuáhrifum til að fá skemmtilegri

mynd.

Timeshift burst

Myndavélin tekur 31 myndar myndaröð á tveimur sekúndum – einni sekúndu fyrir og eftir

að ýtt er á myndavélartakkann. Þú getur því fundið hina fullkomnu mynd.

Social live

Social live er myndavél sem tekur myndir af stillingum sem leyfa þér að senda myndskeið

beint á Facebook™ síðuna þína. Þú þarft að hafa virka internettengingu og skráð(ur) inn á

Facebook™. Myndskeið geta verið allt að 10 mínútna löng.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingarstillingar til að ræsa myndavélina þegar skjárinn er læstur.

Hnitamerking

Merktu myndir með upplýsingum um hvar þær voru teknar.

76

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Snertimyndataka

Finndu fókussvæði og snertu svo myndavélarskjáinn með fingrinum. Myndin er tekin um

leið og þú tekur fingurinn af.

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.

Hvítjöfnun

Stillir litajafnvægið í samræmi við birtuskilyrðin. Táknið fyrir hvítjöfnunarstillinguna er

tiltækt á myndavélarskjánum.

Sjálfvirk

Stillir litajafnvægið sjálfkrafa til að passa við birtuskilyrðin.

Ljósapera

Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

Flúrljós

Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta

Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

Skýjað

Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .