Sony Xperia E3 - Wi-Fi®

background image

Wi-Fi®

Notaðu Wi-Fi® tengingar til að leita á netinu, hlaða niður forritum eða senda og móttaka

tölvupóst. Þegar þú hefur tengst við Wi-Fi® netkerfi man tækið þitt netkerfið og tengist

sjálfkrafa við það næst þegar þú ert innan svæðis.
Sum Wi-Fi® netkerfi krefjast þess að þú skráir þig inn á vefsíðu áður en þú færð aðgang.

Hafðu samband við viðkomandi Wi-Fi® kerfisstjórnanda fyrir frekari upplýsingar.
Sendistyrkur Wi-Fi® netkerfa getur verið breytilegur. Sendistyrkurinn eykst eftir því sem

þú ferð nær Wi-Fi® aðgangsstaðnum.
Tiltæk Wi-Fi® netkerfi eru ýmist opin eða örugg:

Opin netkerfi eru auðkennd með við hliðina á Wi-Fi® nafni netkerfisins.

Örugg netkerfi eru auðkennd með við hliðina á Wi-Fi® nafni netkerfisins.

Sum Wi-Fi® netkerfi birtast ekki á lista yfir netkerfi í boði vegna þess að þau senda ekki

netkerfisnafn sitt (SSID). Ef þú veist nafn netkerfisins getur þú bætt því við handvirkt á listann

yfir tiltæk Wi-Fi® netkerfi.

28

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Kveikt á Wi-Fi®

1

Finndu og pikkaðu á

Stillingar.

2

Dragðu sleðann hjá

Wi-Fi til hægri til að kveikja á Wi-Fi® valkostinum.

Hugsanlega líða nokkrar sekúndur þar til Wi-Fi® er virkt.

Til að tengjast Wi-Fi® neti sjálfkrafa

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar.

3

Pikkaðu á

Wi-Fi. Öll tiltæk Wi-Fi® net birtast.

4

Pikkaðu á Wi-Fi® netkerfi, kerfi til að tengjast því. Sláðu inn lykilorð fyrir læst net.

birtist á stöðustikunni þegar þú hefur tengst.

Til að leita að nýjum tiltækum netkerfum pikkarðu á og síðan á

Leita.

Wi-Fi® neti bætt við handvirkt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Wi-Fi.

3

Pikkaðu á .

4

Færðu inn

Heiti netkerfis (SSID) upplýsingarnar.

5

Til að velja gerð öryggis pikkarðu á

Öryggi.

6

Sláðu inn lykilorð ef beðið er um það.

7

Til að breyta ítarlegri stillingum á borð við proxy- og IP-stillingar merkirðu við

gátreitinn

Sýna ítarlega valkosti og gerir þær breytingar sem þarf.

8

Pikkaðu á

Vista.

Hafðu samband við Wi-Fi® netkerfisstjórann til að fá SSID netkerfis og lykilorð.

Sendistyrkur á Wi-Fi® aukinn

Ýmislegt er hægt að gera til að auka sendistyrk Wi-Fi®:

Færðu tækið nær Wi-Fi® aðgangsstaðnum.

Færðu Wi-Fi® aðgangsstaðinn frá hugsanlegum hindrunum eða truflunum.

Ekki hylja Wi-Fi® loftnetssvæðið á tækinu (auðmerkt svæði á myndinni).

Wi-Fi® stillingar

Þegar tengst er við Wi-Fi® netkerfi eða þegar eru Wi-Fi® netkerfi tiltæk í nágrenninu er

hægt að sjá stöðu þessara netkerfa. Þú getur einnig látið tækið þitt tilkynna þér þegar

það finnur opin Wi-Fi® netkerfi.
Ef þú hefur ekki tengst við Wi-Fi® netkerfi notar tækið þitt gagnatengingu til að fá aðgang

að internetinu (ef þú hefur sett upp og gert gagnatengingu virka í tækinu þínu). Með því

að bæta við biðstöðu á Wi-Fi® geturðu tilgreint hvenær á að skipta úr Wi-Fi® yfir í

gagnatengingu.

29

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að kveikja á tilkynningum fyrir Wi-Fi® net

1

Kveiktu á Wi-Fi®, ef ekki er þegar kveikt á því.

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Wi-Fi.

3

Ýttu á .

4

Pikkaðu á

Ítarlegt.

5

Merktu við gátreitinn

Kerfistilkynning.

Til að skoða ítarlegar upplýsingar um tengt Wi-Fi® net

1

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Wi-Fi.

2

Pikkaðu á Wi-Fi® netið sem þú ert tengd/ur við sem stendur. Ítarlegar

netupplýsingar birtast.

Til að bæta við Wi-Fi® svefnreglu

1

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Wi-Fi.

2

Ýttu á .

3

Pikkaðu á

Nánari upplýsingar.

4

Pikkaðu á

Hafa kveikt á Wi-Fi í svefni.

5

Veldu valkost.