Sony Xperia E3 - Notkun staðsetningarþjónustu

background image

Notkun staðsetningarþjónustu

Staðsetningarþjónustur heimila forritum á borð við Kort og myndavélina að nota

upplýsingar frá farsímakerfum og Wi-Fi® netum ásamt GPS-upplýsingum til að áætla

staðsetningu þína. Ef þú ert ekki í hreinni línu við GPS-gervitungl getur tækið ákvarðað

staðsetninguna með Wi-Fi®. Ef þú nærð ekki Wi-Fi® neti getur tækið ákvarðað

staðsetninguna með farsímakerfi.
Til þess að láta tækið finna staðsetningu þína þarftu að kveikja á staðsetningarþjónustum.

Staðsetningarþjónusta virkjuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Staðsetning.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

Staðsetning til hægri.

4

Pikkaðu tvisvar á

Samþykkja til að staðfesta.

Þegar þú virkjar staðsetningarþjónustu virkjast bæði

GPS-gervitungl og Staðsetningarþjónusta

Google sjálfkrafa. Þú getur slökkt á hvorum kosti um sig.

Google-forritum veittur aðgangur að staðsetningu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Google > Staðsetning.

3

Dragðu rennitakkann við hliðina á

Staðsetning til hægri.

4

Pikkaðu tvisvar á

Samþykkja til að staðfesta.

Þegar þú virkjar staðsetningarþjónustu virkjast bæði

GPS-gervitungl og Staðsetningarþjónusta

Google sjálfkrafa. Þú getur slökkt á hvorum kosti um sig.

GPS-nákvæmni aukin

Þegar þú notar GPS í fyrsta sinn í tækinu getur það tekið 5 til 10 mínútur að finna

staðsetningu þína. Til að auðvelda leitina skaltu gæta þess að vera í beinni augsýn við

himininn. Stattu kyrr og ekki hylja GPS-loftnetið (auðmerkt svæði á myndinni). GPS-merki

berst í gegnum ský og plast en öðru máli gegnir um flesta fasta hluti á borð við hús og

fjöll. Ef staðsetningin finnst ekki eftir nokkrar mínútur skaltu færa þig á annan stað.